2.8.2009 | 17:07
Ríkisstjórnin er mesti peningafalsarinn
Það er í abstrakt engin hlutlægur munur á þessum fals peningum og þeim peningum sem ríkið hefur skaffað okkur. Þetta er bara pappír. Eina leiðin til að hafa ekki falspeninga er að safna gullforða og nota peningaseðla sem inneign fyrir ákveðnu magni af gulli.
Ríkisstjórnir eru mestu peninga falsararnir. Sjáið bara Zimbabve... Sjáið þýskaland á 4 ára tuginum... Alþýðan þarf alvöru pennga en ekki eitthvað pappírs rusl.
|
Peningafalsarar á sveimi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.8.2009 | 14:13
Tjáningarfrelsi
Það er nokkuð merkilegt að lönd sem vilja kenna sig við tjáningarfrelsi skuli setja síðan reglum um meðferð á fánum. Fáni lands er nefnilega tákngervingur lýðveldis viðkomandi lands. Er ég einn um að sjá hagsmunina að ekki megi vanvirða tákn þess sem stjórnar landinu? Þetta er jafn fáránlegt og lög um að það megi ekki lasta konunga. Eða á Íslandi að það megi ekki lasta guð.
Þannig ég sýna þá borgaralegu óhlýðni; að kalla guð óþokka. Þvílíkur annar eins drullusokkur fyrir finnst ekki; þar að segja ef hann væri þá til. Við erum að tala um að þessi ástkæri guð ykkar drap víst alla frumburði Egyptalands. Þessi ímyndaði draugur er síðan dýrkaður sem einhverskonar tæki til synda aflausnar. Ef synda aflausn væri möguleg, þá myndi ég allavega ekki sækja hana til einhvers ósýnilegs anda sem kaffærir jörðinni og drekkir öllum nema útvöldum. Ef hann væri til væri hann álíka siðvandaður og Hitler eða Stalín.
|
Indverskur fánaböðull gómaður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2009 | 13:23
Raunar er það verra
Lífrænt ræktað grænmeti er frat og ég hef alltaf haldið því fram. Ástæðan fyrir því að fólk kaupir það eru rómantískar hugmyndir um einhvern eldri og betri tíma. Þetta er raunvörulega staðhæfilaus tilfinningasemi. Lífrænt grænmeti hefur ekki betra næringar innihald, það er ljótara, skemmist fyrr, er dýrara og líklegra til þess að valda sýkingum; því notast er við lífrænan áburð; sem er fagurgal yfir skít.
Fólk sem kaupir lífrænt drasl hugsar ekki. Það útilokar það sem það sér fyrir framan sig í gæðum og verði. En kaupir síðan staðhæfilaust rugl af því einhverjir hippa andskotar halda því fram. Lífræn ræktun er andbyltingarsinnuð!Hún er ekki til annarrs gerð en að arðræna alþýðuna. Hún stendur í vegi fyrir heims-frjálshyggju byltingu alþýðunnar.
Sem og lífefna eldsneyti, en meira um það síðar.
|
Segja lífrænt ekki hollara |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.7.2009 | 21:41
Gagnslausar ofsóknir
Lögreglan hefur úr of litlu að ráða og mikil kvöð er lögð á hana með að framfylgja fíkniefnalöggjöf, með því að eltast við þessar endalausu pottplöntur og efnafræðisett. Ef fólk vill skemmta sér með þessum hætti um verzlunarmanna helgina; hvað er þá athugavert við það?
Fíkniefni eru slæm og bla bla bla; það vita flestir. En færri gera sér grein fyrir því að ég ber enga ábyrgð á hamingju fólks í lífinu. Mér er bara alveg sama þótt einhverjir jólasveinar dópi skilningarvit sín á aðrar plánetur. Það er ekki minn skaði, heldur þeirra. Þannig af hverju ætti mér ekki að vera sama? Því fleiri sem falla í gryfju eiturlyfjanna, því skýrar mun mín stjarna skína. Þannig má jafnvel færa rök fyrir því að ég hagnist á hrakföllum annarra.
Þannig enn og aftur: Ég ber ekki ábyrgð á hamingju ykkar, mér er alveg sama um ykkur og mér langar ekkert til að borga fólki fyrir að eltast við pottplöntur og efnafræðisett. Ég hef nákvæmlega enga hagsmuni af því.Vinsamlegast hættið að skattleggja mig fyrir þessum ofsóknum ykkar á dópistum. Raunar megið þið hætta að skattleggja mig alfarið.
|
Fíkniefni fundust á tveimur stöðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2009 | 13:39
Rógburður er líka tjáning
Á Íslandi á að vera svo kallað tjáningarfrelsi. En svo virðist sem frelsi eins og tjáningarfrelsi, trúfrelsi og ferðafrelsi; séu bara tæki til þess að skerða önnur frelsi. Nánar tiltekið efnahagsfrelsi. Stöð tvö á útsendingarbúnaðinn og hefur ekki skuldbundið sig gagnvart honum á neinn hátt; skilst mér. Með því að segja að fólk hafi bara rétt á að tjá sig, svarar það ekki með hvaða leiðum. Er það allt í einu efnahagsfrelsi að eiga prentvélar, útsendingarbúnað og ráða krakka til að bera dagblöð í hús? Eina leiðin til að framkvæma tjáningarfrelsi; á hátt sem er samkvæmur sjálfum sér er að láta tjáningarfrelsið fylgja eignarréttinum. Fólk á rétt á að segja það sem það vill; en í sínum húsum, dagblöðum og svo framvegis.
Magnús Þorsteinsson virðist gefa sér einhvern rétt til mannorðs. En er mannorðið eitthvað sem hann heldur á? Mannorð hans er einmitt bara til í hugum annarra. Sínum eigin stjórnar hann en á ekki tilkall til hugsanna annarra. Þess vegna mætti alveg eins kalla hann barnaníðing.
Rógburður er líka tjáning. Að fólk geti kært fólk fyrir rógburð er einfaldlega að kæra það fyrir að tjá sig. Það að ríkið eigi að veita einhverja vernd gegn einhverskonar ,,misnotkun" á fjölmiðlun er ekki til annars fallið en að deyfa gagnrýna hugsun.
að ,,misnota" fjölmiðla er gildismatshlaðið orð. Af því þá gefur fólk sér að það sé einhver rétt leið til þess að nota fjölmiðla. Ef ég ætti fjölmiðill myndi ég hiklaust nota hann til að koma hagsmunum mínum á framfæri. Það er eðlilegt, varla ætlast fólk til að ég myndi nota fjölmiðil til þess að halda uppi andófi gegn sjálfum mér?
Það er ekkert til sem heitir hlutlaus fréttamennska. Það er hinsvegar til hlutlægni. Sem væri þá laus við allt gildismat.
Ef ég ætti næga peninga þá myndi ég bara kalla hann barnaníðing, til þess eins að að fá að mótmæla þessu fyrir dómi.
Að tjáningarfrelsi fylgi einhverskonar ábyrgð er fáránleg hugmyndafræði. Þú átt þín raddbönd, enginn annar. Fyrir hverjum þarftu þá að réttlæta beitingu raddbanda þinna? Breytir máli hverskonar tjáning á sér stað?
|
Segir frétt Stöðvar 2 ranga |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.7.2009 | 18:57
Þegar verkefnin eru of mörg og of fáir peningar
Það er ekki einungis lagt á herðar lögreglumanna að eltast við glæpamenn; heldur líka óvini ríkisins. Milljónum er varið í hið tapaða stríð gegn eiturlyfjum. Í staðinn fyrir að halda uppi eftirliti og reglu um erilsamar helgar, eru lögreglumenn að eltast við einhverjar pottaplöntur.
Búdrýgindi alþýðunnar eru greinilega verðugri skotmörk heldur en glæpamennirnir. Ekki furða að slíkt gildismat ráði ríkjum þegar ráðamenn lýðveldisins leyfa sér sjálfir að stela. Er það ekki hræsni af skatt kúgurunum að handsama stéttarbræður sína og dæma?
Lýðveldið er glatað og embættismenn þess hafa meiri áhyggjur að gefa fólki einhverjar aumingjabætur og niðurgreiða minkafóður, heldur en að vinna að öryggi þegna sinna. Enda hafa þeir gegnum sýrt og eyðilegt merkingu orðsins réttindi með sósíalismanum sínum, fólk á ekki lengur rétt á vernd gegn þjófum heldur rétt á þýfi í formi atvinnuleysisbóta, listamannalauna og almennra aumingja niðurgreiðslna.
|
„Algjör misskilningur“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.7.2009 | 18:43
Skattlagning er þjófnaður
Borgarar, höfnum lýðveldinu og byrjum frá grunni með stofnun annars lýðveldis. Íslenska lýðveldið er verkfæri valdastéttarinnar til arðráns alþýðunnar. Því frá stofnun þess hefur það kúgað þegna sína með skattheimtu. Til þess að tryggja frelsi, jafnrétti og bræðralag ; er það brýn nauðsyn að afnema núverandi lýðveldi. Annað kemur í staðinn sem er ekki samansafn þjófa og stigamanna, heldur mun það lýðveldi afla sér tekna á heiðvirðan hátt.
Það er ekki mögulegt að samræma jafnrétti og skattlagningu. Svo lengi sem sumt fólk hefur völd til að krefjast eigna annarra, þá standa hinir rændu höllum fæti.
Alþýðan og borgarastéttin eru rænd af lýðveldinu. Því eina leiðin til að eignast hluti annarra er að fá þá að gjöf eða taka þá. Það er engin þriðja leið sem heitir skattlagning. Það er faguryrði yfir þjófnað. Því að sama skapi og ræningi gerir þér mein afhentir þú ekki eignir þínar þá læsa erindrekar stjórnvalda þig inni.
Samt sem áður er ræninginn heiðarlegri. Þegar hann fær eignir þínar í hendur fer hann á braut. En erindrekar lýðveldisins fara ekki frá þér; þeir krefjast þakka þinna fyrir þjófnaðinn og ganga eftir þér með skipandi með kylfuna á lofti.
Lýðveldið er ekki friðsamlegt. Þegar skipunum þess er ekki hlýtt þá fylgja því viðurlög. Hver lög þess eru því ekki sett til að vernda borgara frá ágangi þjófa, heldur eru hótun um refsingu sé skipunum ekki hlýtt.
Það þarfnast ekki réttlætingar að sækja aftur eignir sem tapaðar hafa verið til þjófa. En fæstir glæpir samkvæmt skilgreiningu lýðveldisins eru af þeim toga. Flestir glæpir eru nú án fórnarlamba. Fólk sem hefur engu stolið og engan meitt, er fangelsað. Það hefur ekki gert meira af sér en það að fylgja ekki skipunum yfirvalda. Því til vitnis gerir yfirvaldið oft ekki meira en að hrella ógæfufólk og áreita portkonur.
Að það liggi fyrir frá þjóðinni einhverskonar umboð til skattlagningar sem fengið er í gegnum kosningar er lygi. Því alþýða manna getur ei veitt umboð til aðgerða sem hún sjálf má ekki framkvæma. Alþýða manna hefur rétt á að verjast ágangi þjófa og ofbeldismanna, en ekki að ræna aðra borgara. Því getur hún einungis veitt umboð til að vernda sig en ekki á nokkurn hátt leyfi til gripdeilda.
Það verður einmitt hið eina hlutverk annars lýðveldisins. Að vernda borgara sína. Slík vernd verður að vera fjármögnuð á annan hátt en með kúgunum. Hver væri þá annars munurinn á lýðveldinu og mafíunni ef lýðveldið heimtar verndartoll?
Sé fólk ekki reiðubúið að greiða hluta tekna sinna til hins nýja lýðveldis, þá mun því vera það frjálst án viðurlaga. Á móti kemur að þá er hið nýja lýðveldi ekki skuldbundið til setja verndarvæng sinn um eignir þess og líf. Það má kannski vera að einhverjir kæri sig ekki um vernd lýðveldisins eða telji sig geta varið sig sjálfir.



frjalshyggjufelagid